Leikfélagið hefur tekið til sýninga Grandlendingasögu eftir Jón Benjamín Einarsson i leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.
Verkið fjallar í stuttu máli um hremmingar lítillar þjóðar og úrlausnir hennar til að koma sér út úr þeirri klípu sem þjóðin hefur komið sér í. Sagan gerist á ýmsum tímabilum í grandlensku sögunni og til eru kallaðir ýmsir litríkir karakterar til að finna lausnir á vandanum.
Sýningar eru alla sunnudaga fram að jólum bæði klukkan 3 og 6.
Miðapantanir eru í síma 893-7353