Lamb fyrir tvo

Hvernig myndurðu bregðast við  ef að gesturinn á næsta borði við þig á veitingastað fengi að borða matinn þinn? Líklega yrðir þú hissa, síðan reiður, og síðan myndirðu líklega hringja á lögguna. Það er einmitt það sem gerist í leikritinu Lambi fyrir tvo sem frumsýnt verður á Gallerý Bar 46, Hverfisgötu 46 á laugardaginn kemur. Það er Leikfélagið Peðið sem setur upp í leikstjórn Lísu Pálsdóttur útvarpskonu, en verkið er eftir Jón Benjamín Einarsson,  sem segja má að sé hirðskáld leikfélagsins. Peðið hefur sérhæft sig í að leika á börum, en það var stofnað á Grand Rokk við Smiðjustíg 2006 og hefur sett upp einar 14 sýningar. Lamb fyrir tvo var fyrsta uppsetningin, en var aðeins sýnt einu sinni á Menningarhátíð Grand Rokks 2005, því þótti full ástæða að taka verkið upp núna og sýna um páskana.  Til að vita hvernig málum lyktar, og  hvort lögreglan sé réttlát og leysi málin verður ekki upplýst hér,  en sýningar eru  sem áður segir laugardaginn 31.mars kl. 1700 og sunnudag 1.apríl kl. 1700 og síðan á skírdag, föstudaginn langa og laugardaginn 7.apríl allar kl. 1700 og er um hálfa klukkustund í flutningi.
 

Síðustu sýningar

Lokasýningar á Andakt eftir Guðjón Sigvaldason verða núna á sunnudaginn 8. jan 2012 kl. 16:00 og 18:00 á Gallerý Bar 46

 

Miða er hægt að panta á barnum, síminn þar er 561-0700

 

 Andakt er eins konar hugleiðing um inntak jólanna en frá ansi óvæntum hliðum. Með verkinu er ekki verið að snúa hefðbundnum gildum á haus og það er heldur ekki verið setja út á jólahátíðina sjálfa. Nei, ekki aldeilis. Það má skilja á þátttakendum í sýningunni að þeir séu að skora sjálfa sig á hólm og vilji upplifa jólahátíðina á nýjan máta með von um að koma þeirri reynslu til skila til áhorfenda.

 ,,Vel má vera að Castro gamli hafi getað frestað jólunum. En við vitum öll að hvað sem gengur á og hvar sem við erum þá ganga jólin í garð eða leggjast yfir,” segir Vilhjálmur leikstjóri og höfundur verksins bætir stuttlega við: ,,Já, jólin koma með sína Helgu Nótt og Helga Frið, eins og fram kemur í sýningunni.”

 

Vonandi sjáum við sem flest Peð núna næstkomandi sunnudag

Kærar kveðjur

Stjórn Peðsins

 

Nýtt frá Leikfélaginu

Leikfélagið Peðið frumsýnir glænýjan gamansöngleik:
 
 
Andakt á Gallery-Bar 46
 
 
Frá því Leikfélagið Peðið var stofnað á kránni Grand Rokk við Smiðjustíg árið 2005 hefur félagið sýnt fjölda verka, flest eftir félagsmenn og auk þess hafa félagar Peðsins samið tónlist og söngva þegar við á. Þannig er það líka að þessu sinni en jólasýning Peðsins í ár er gamansöngleikurinn Andakt eftir Guðjón Sigvaldason í leikstjórn Vilhjálms Hjálmarssonar.
 
Tónlistin er eftir Kormák Bragason, Inga Gunnar Jóhannsson, Ásgeir Jónsson, Magnús R. Einarsson og Tómas Tómasson. Aðstoðarleikstjóri og framkvæmdastjóri sýningarinnar er Hjördís Jóhannsdóttir. Leikmyndin er eftir Inga Rafn Hauksson en höfundurinn og Helga Völdundardóttir hanna búninga. Alls koma hátt í þrjátíu manns að sýningunni.
 
Jólasýningar Peðsins hafa slegið í gegn. Ekki er að efa boðskapur verksins að þessu sinni hitti í mark.
 
Andakt er eins konar hugleiðing um inntak jólanna en frá ansi óvæntum hliðum. Með verkinu er ekki verið að snúa hefðbundnum gildum á haus og það er heldur ekki verið setja út á jólahátíðina sjálfa. Nei, ekki aldeilis. Það má skilja á þátttakendum í sýningunni að þeir séu að skora sjálfa sig á hólm og vilji upplifa jólahátíðina á nýjan máta með von um að koma þeirri reynslu til skila til áhorfenda.
 
,,Vel má vera að Castro gamli hafi getað frestað jólunum. En við vitum öll að hvað sem gengur á og hvar sem við erum þá ganga jólin í garð eða leggjast yfir,” segir Vilhjálmur leikstjóri og höfundur verksins bætir stuttlega við: ,,Já, jólin koma með sína Helgu Nótt og Helga Frið, eins og fram kemur í sýningunni.”  
Gamanleikurinn Andakt verður frumsýndur á Gallery-Bar 46, Hverfisgötu 46, sunnudaginn 4. desember kl. 18.00
 
Aðrar sýningar sem þegar hafa verið ákveðnar eru:
Sunnudaginn 11. desember kl. 16.00 og 18.00
Sunnudaginn 18. desember kl. 16.00 og 18.00
Sunnudaginn 8. janúar kl. 16.00 og 18.00
 
Félagar í Peðinu eru boðnir og búnir að veita allar frekari upplýsingar. Elín Hilmarsdóttir (863 0531) og Kristján Þorvaldsson (770 7360) geta liðsinnt áhugasömum.

 
Fleiri greinar...

<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 6